Saturday, September 29, 2018

Monday, September 24, 2018

Golfmót Víkingaklúbbsins 2018, úrslit

Golfskákmót Vikingaklúbbsins fór fram við fjölbreyttar aðstæður sunnudaginn 23 september í Mýrinni Garðabæ, en Mýrarvöllur er vinalegur en þó krefjandi golfvöllur á glæsilegu golfsvæði Golfklúbbs Garðabæjar og Kópavogs.  Mótið fór fram í sól, hita, rigningu, kulda og á seinni níu holum vallarins fengu keppendur að kynnast íslensku hagléli.  Íslenskt haustveður eins og það gerist skemmtilegast. Fyrst var spilaðar 18 holur (tveir hringir) og í lokinn var haldið 5. umferða skákmót í glæsilegum húsakynnum GKG.

Stefán Bjarnason sigraði golfmótið og varði því titil sinn frá 2017.  Hann spilaði á 84 höggum og náði 39 punktum.  Annar í golfmótinu varð Pálmi Péturssin, en hann spilaði í 99 höggum (28 punktum).  Þriðji varð Páll Sigurðsson, sem kom rétt á eftir Pálma með 100 högg (28 punktar).  Pálmi Pétursson varð punktameistari golfmótsins, því hann spilaði betur á seinni níu holum vallarins.  Alls tóku fimm spilarar þátt í golfkeppninni, þar af voru þrír formenn stærstu skákklúbba stórhöfuðborgarsvæðisins.  Vel fór þó á með mönnum.

Eftir mótið var telft í golfskálanum, en við bættust þá auka skákmenn.  Ólafur B. Þórsson sigraði skákmótið með fullu húsi.  Í öðru til fjórða sæti urðu þeir Pálmi Pétursson, Páll Sigurðsson og Gunnar Fr. Rúnarsson. 

Pálmi Pétursson sigraði golfskákmótið þegar lagt var saman samanlagðan árangur í golf og skák, þrátt fyrir að hann tapaði í síðustu umferð fyrir Gunnar Fr, þá var sigur Pálma í golfskákinni aldrei í hættu.  


Úrslit: 

Höggleikur:

1. Stefán Bjarnason 84 högg
2. Pálmi Pétursson 99
3. Páll Sigurðsson 100
4. Gunnar Fr. Rúnarsson 115
5. Gunnar Fr Rúnarsson 129

Punktakeppni:

1. Pálmi Pétursson 28 punktar (fleirri punktar á seinni 9)
2. Páll Sigurðsson 28
3. Gunnar Fr. Rúnarsson 25
4. Benjanín Jóhann Johnsen 15
(Stefán Bjarnason fékk flesta punkta, en gat ekki unnið punktakeppnina)

Golfskák (tvíkeppni):

1. Pálmi Pétursson
2. Páll Sigurðsson
3. Gunnar Fr. Rúnarsson
4. Benjamín Jóhann Johnsen

Golfskák punktakeppni:

1. Páll Sigurðsson
2. Gunnar Fr Rúnarsson
3. Benjamín Jóhann Johnsen

Skákmót:

1.  Ólafur B. Þórsson 5. v
2. Pálmi Pétursson 3. v
3. Páll Sigurðsson 3. v
4. Gunnar Fr Rúnarsson 3. v
5. Sturla Þórðarson 1. v
6. Benjamón J. Johnsem 0. v

Golfmeistari Víkingaklúbbsins 2018:  Stefán Bjarnason
Golmeistari Víkingaklúbbsins 2018 punktar:  Pálmi Pétursson
Golfskákmeistari Víkingaklúbbsins 2017: Pálmi Pétursson
Golfskákmeistari Víkingaklúbbsins 2017 punktakeppni:  Páll Sigurðsson